Dansari deyr

9 Jún


Gömludansameistarinn Gunnlaugur Guðmundsson hefur vakið athygli á vefnum fyrir þetta reffilega spjall sem hann átti við Helga Pétursson 1976. Gunnlaugur lætur allt flakka og er leiður yfir því sem hann telur vera hnignun gömludansanna. Í viðtali við Dagblaðið sama ár er hann á sömu nótum og er hundfúll út í „toppfígúrur“ sem eru að skemma gömlu dansana.
toppfigurur
Maður skyldi ætla að maður eins og Gunnlaugur væri fullur sjálfstrausts og ekki týpan til að ganga í sjóinn, en ekki er allt sem sýnist og allsstaðar einhver harmur á bakvið grímuna. Magnús Þór Hafsteinsson benti mér á það í framhaldi af bloggi mínu um örlagasögu Björns Braga að Gunnlaugur hafi skömmu eftir hið reffilega sjónvarpsviðtal horfið og síðan fundist látinn. Dánardagur hans er 26. nóvember 1976.
leithafin
gunnl

Þá veistu það.

3 svör to “Dansari deyr”

  1. Magnús Þór Hafsteinsson júní 10, 2015 kl. 1:37 e.h. #

    Sorglegt mál og kallar á lag https://www.youtube.com/watch?v=hvhe2QCYqvM

  2. Bjarki H Hall mars 27, 2018 kl. 7:24 e.h. #

    Ég hef ekki fundið neitt um það að hann hafi fundist.

Trackbacks/Pingbacks

  1. Erfiðasti viðmælandinn: Gunnlaugur eða Jerry? - DV - mars 9, 2018

    […] Gunnlaugur, sem var um sjötugt á þessum tíma, lést skömmu eftir viðtalið. Samkvæmt bloggsíðu Dr. Gunna, gekk hann í […]

Færðu inn athugasemd