
Til hamingju með daginn Bítla-unnendur! John Lennon 72 ára í dag (og Sean Lennon 37 ára). Það má hún Yoko eiga að hún hefur spilað ágætlega úr bítlaarfinum með öllu friðar-dótararíinu og auðvitað er þrælmagnað að Reykjavík sé vettvangurinn undir þetta. Það verður væntanlega allt undirlagt af þessu í dag; friðarverðlaun og Viðeyjarsiglingar og Lady Gaga dulbúin í öllum hornum. Brjálað að gera hjá íslenskum papparössum. Ég sé ekki betur en að káta ekkjan bjóði öllum út í Viðey í tilefni dagsins.
Yoko hefur látið bítlagamminn geysa víðar en hér. Í Central park er t.d. Strawberry field og allskonar fríðar-eitthvað í gangi þar. Það kæmi mér ekki á óvart ef einhverjum bítla-aðdáendum fyndist eins gaman að kíkja á Viðey eins og mér fannst gaman að tékka á friðarumsvifum Yokoar í New York.

