
Sko sjáðu nú þetta! Í hinum rammíslenska bland-í-poka bar Hagkaupa má nú fá svona ljómandi töff gúmmí í laginu eins og gítar. Smakkast reyndar ekkert æðislega (frekar en annað gúmmí) en er allavega töff.
Það er eitthvað rammíslenskt er við laugardagsuppgripin í nammibarnum. Fólk svoleiðis alveg missir sig. Sumir krakkar eru að fara þarna út með kíló af sykri í pokunum sínum. Ég sýni mikla yfirvegun og kaupi aldrei meira en 200 gr og finnst eiginlega betra að fá mér úr “heilsu”-nammibarnum, sem eru súkkulaðihúðaðar hnetur og svoleiðis.
Líklega verður nammibarinn bannaður á endanum. Þá verður nammibar bara í Árbæjarsafninu.
Það á að banna þessa nammibari.
Sýklabæli dauðans þar á ferð og maður hefur séð manneskjur taka upp nammi með berum höndum af gólfinu og halda svo áfram að skófla nammi í poka og oft án allra áhalda.
Njálgsstýjur þessir nammibarir.