
Pulsuvagnar spretta upp. Einn kominn við enda Hvalfjarðarganganna (Akranes megin) og nú er þessi kominn við Hallgrímskirkju. Sniðug staðsetning. Þarna er alltaf allt vaðandi í túristum – að sjálfssögðu eingöngu komnum hingað vegna átaksins Inspired by Iceland – mænandi á kirkjuna og Leif. Nú með pulsu í hönd.
Skv. Valtý B. Thors býður Hallgrímspulsa upp á grillaðar Pólskar pylsur í brauði. Hann fékk sér svoleiðis um daginn – „Þetta bragðaðist svona eins og bjúgnapylsublendingur, það er alls ekki eins slæmt og það hljómar,“ vill hann meina.


Þetta er nýjasti uppáhalds veitingastaðurinn minn. Fer þarna reglulega til að fá mér pylsu. Þarna afgreiðir gríðarlega settlegur maður gúrme pylsur og litla kók.